Ég og Húnbogi skelltum okkur á skauta í Egilshöll í dag. Hann hafði séð listdans á skautum í sjónvarpinu og sagði að þetta langaði hann að prufa. Mér til mikillar furðu og ánægju gafst hann ekki upp og var það að lokum ég sem nennti ekki meira og dró hann heim eftir rúma tvo tíma.. Hann var bara nokkuð klár miðað við að hafa aldrei stigið á skauta áður og þetta verður pottþétt eitthvað sem við gerum aftur.
Fyrst var hann með hjálpargrind en svo losaði hann sig við hana og vildi spreyta sig sjálfur á ísnum.
Húnbogi á skautum. Smellið til að sjá snillinginn.
Fyrst var hann með hjálpargrind en svo losaði hann sig við hana og vildi spreyta sig sjálfur á ísnum.
Húnbogi á skautum. Smellið til að sjá snillinginn.